Skýjaglópurinn

27.01.2008 23:01:31 / skyjaglopurinn

Landsliðscamp

Þetta er blogg fyrir þig Jóhann.

Það var landsliðscamp um helgina sem þýðir æfingar klukkan 07:15 á laugardags- og sunnudagsmorgni. Það var samt bara fínt. Spiluðum á móti 3. flokk í morgun. Mitt hlutverk var mjög mikilvægt. Ég stóð og opnaði hliðið fyrir skiptimönnunum. Það hrósuðu mér allir fyrir, ég stóð mig eins og hetja!

band.jpg picture by xEverlasting_Gazex

Hey, ég er að ná að sigrast á fóbíum mínum. Þið trúið því kannski ekki en núna get ég notað vaselín! Já, ég er sko ekki að grínast. Ég held bara að það sé fræðilegur möguleiki að sigrast á sínum verstu fóbíum. Ég hef samt ekki enn lagt í að berjast gegn oddatalna fóbíunni minni. Held það verði eitthvað erfiðara...

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 21:00:59 / skyjaglopurinn

This is Orkin, the town rapist! Naughty, naughty!

Já ég blogga. Kannski því ég ætti að vera að læra fyrir tvö próf...

Tókst um daginn að skrifa nafnið mitt vitlaust á íslenskuritgerð. Flott Margrét!

"Þetta voru töffararnir í Westlife." Eitthvað svo rangt við þessa setningu.

Hmm...
Hef augljóslega ekkert að segja.
Reyni að halda eitthvað áfram.
Það gengur illa...

http://youtube.com/watch?v=bwpW9oH9taw

Fokk gott lag með Radiohead og fokk gott myndband. Dó næstum úr forvitni fyrst þegar ég sá það. Svo komst ég að því hvað hann sagði og vildi að ég vissi það ekki. Langar svolítið að leggjast niður...

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 00:09:07 / skyjaglopurinn

Some people call me the space cowboy, yeah

Var í sturtu. Vildi ekki hætta svo ég setti aftur sjampó í hárið mitt þó það væri löngu orðið hreint. Starði svo niður á rauðu táneglurnar mínar þegar ég hafði ekki lengur neitt að gera. Af hverju, jú einfaldlega af því ég nenni ekki að læra undir frönskupróf. Sem er líklega ómeðvitað, já eða bara meðvitað, ástæðan fyrir þessu bloggi. Sorglegt.

Ég er komin í úrtak fyrir landsliðið í íshokkí. Ætti kannski að hætta að segja öllum að við séum eiginlega bara tvær, markmennirnir, á landinu. Það er miklu flottara að sleppa þeim óþarfa upplýsingum.

(Ekki ég)

Heim um helgina. Hlakka mest til að láta stjana við mig. Sé það í hyllingum. En kannski er þetta eins og þegar karl í amerískri bíómynd er fastur í eyðimörkinni og sér vatn í fjarska, hleypur á staðinn og þá bíður hans bara uppvask og lítill svefn. En við eigum þó uppþvottavél.

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 23:26:30 / skyjaglopurinn

Sumar?

Nei ég held það sé ekki komið sumar. Þó veðrið sé eins og á spænskum baðströndum (eða það finnst Íslendingum) þá á pottþétt eftir að byrja að snjóa eftir viku. Vona samt ekki.

Enskukennarinn sagði í dag að þetta stefndi í að verða besti dagur sumarsins, hvað veðrið varðar, og auðvitað trúir maður enskukennaranum þegar hann talar um veðurspá. Þýðir ekki annað.

Unnar stærðfræðikennari sagðist ekki geta leyft okkur að læra úti þar sem það væru tveir rauðhærðir í bekknum og það gæti kviknað í okkur. Takk.

Hangandi fiskur. Veit ekki hvað það er kallað. Voða smekklegt. 

Ellimerki. Hef verið að velta þessu fyrirbæri fyrir mér. Endilega bendið mér á ef ég er að gleyma einhverju.

Karlar: Grái fiðringurinn - Þarf ekki alltaf að vera ný, ung, falleg kona. Hjá hinum "venjulega Jóni" er það oftast nýtt, dýrt, áhugamál eða dót. Getur verið stór jeppi, mótorhjól (já pabbi minn) og flest sem mönnum finnst vera karlmennskumerki.

Konur: Tupperware - Góð skemmtun á laugardagskveldi samanstendur af snittum og dropa af rauðvíni í Tupperware-boði. Hljómar vel.

Bæði kynin: Fjarsýni - Flestir eru í afneitun fyrstu 5-10 árin. Takið samt eftir því að þau halda dagblaðinu langt frá sér. Fer ekki framhjá neinum. Þau gefast nú upp á endanum og fá sér lesgleraugu.

Man ekki meira í augnablikinu en það kemur líklega.

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:51:59 / skyjaglopurinn

The Ginger Survival Guide

Ég hef aldrei verið eins meðvituð um minn hárlit eins og ég er núna eftir að ég hóf nám við MA. Allt í einu er merkilegt að vera rauðhærður. Ekki eitthvað betra eða neitt þannig, bara svona "hey, þið eruð bæði rauðhærð!" Ég sjálf hef aldrei lent í einelti eða einhverju slíku vegna rauðu lokkanna minna en sumir hafa lent í því, því miður.

Um daginn var familían fyrir sunnan og við vorum að skanna bókabúð þegar ég rakst á stórmerkilega bók sem ber nafnið The Ginger Survival Guide. Pabbi var ekki lengi að taka þá ákvörðun að kaupa hana þar sem bróðurpartur fjölskyldunnar er rauðhærður.

 



Þessi bók reyndist hin mesta skemmtun og inniheldur fróðleik eins og:

"Unfortunately, some scientists believe that the secessive ginger gene could die out as early as one hundred years from now. Unless, that is, everyone agrees to have as much sex as possible with ginners, and thereby save the gene. Well, it's worth the try."

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn
Sem, ef þið hafið ekki tekið eftir því, er rauðhærð


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 23:23:49 / skyjaglopurinn

usa vs. the uk

Páskafríið var næs. Fór suður í fermingu, nýtti ferðina og tók fullt af myndum niðrí bæ. Ef þið hafið áhuga bendi ég á http://skyjaglopurinn.blogspot.com. Svo var rosa fínt ball eða "miðnæturtónleikar" á laugardaginn, held að allir geti verið sammála um það.

Ég hef oft lenti í því að ég veit ekki hvort ég á að nota enska-ensku eða ameríska-ensku. Hvort eigum við sem Íslendingar að nota. Eigum við að segja 'lorry' eða 'truck'? 'Term' eða 'semester'? 'Gas' eða 'patrol'? 'Favourite' eða 'favorite'? 'Color' eða 'colour'? Eða er ég bara í ruglinu eins og svo oft áður?

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 01:15:07 / skyjaglopurinn

"Myndaflipp"

Um leið og hitinn fer yfir frostmark gerist eitthvað við okkur Íslendingana. Við förum út á stuttermabolunum þrátt fyrir skjálfandi tennur og fjólubláa putta, brosum allan daginn og neitum að vera inni lengur en 10 mínútur.

Í dag var svona dagur. Sól, og reyndar tunglið líka, á lofti og mjög "útlenskt" veður. Við ákváðum að nota þennan fullkomna dag í smá "myndaflipp" ( elska þetta ótrúlega asnalega orð ). Afraksturinn má sjá í 'Myndir (NÝTT). Vá, frumlegt.

Annars var ég á all svaðalegu BINGO-i áðan en vann nú ekki neitt. Sussumsvei. Skil ekki af hverju ég mæti alltaf í fremstu línu, á barmi taugaáfalls og vinn svo aldrei neitt. En að gefast upp, það er sko ekki til í minni orðabók, ónei. Ég held í vonina og mæti sko aftur og aftur þangað til þið neyðist til þess að gefa mér skaðabótavinning.

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn
Sem er að missa vitið


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 16:54:34 / skyjaglopurinn

Ritstífla

Jæja, sumir orðnir svo óþolinmóðir að ég ákvað að skella inn einu bloggi þó ég hafi ekkert að blogga um.

Var að setja einhverjar myndir inná http://skyjaglopurinn.blogspot.com og ætla að vera aðeins duglegri við það.

Get ekki sagt neitt fróðlegt né fyndið. Þetta er hræðilegt. Vorkennum Margréti aðeins meira...

Hey, jú get sagt ykkur frá kjarakaupum mínum á föstudaginn. Fór í Hjálpræðisherinn og keypti mér eitt stykki leðurjakka, skópar og peysu. Ekki að mig hafi vantað föt. Þegar Ásta opnaði fataskápinn um daginn hrundu út nokkrar peysur sem tilheyra mér:S Gaman samt að segja frá því að síðasti leðurjakki sem ég átti var bleikur. Úff, hvað ég var svöl.

Ég í nýja jakkanum

Jah, ég er nú ekki svona töff í nýja jakkanum en ég reyni, hahaha. Svo gaman að hlæja að sjálfri mér.

Fann þennan afar óviðeigandi leik á netinu: http://jesusdressup.com/ kannski eitthvað fyrir ykkur

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn
Fatasjúklingur í afneitun


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 17:24:19 / skyjaglopurinn

Tvífarar

Hafið þið tekið eftir tvíförum? Ég lendi nú ekki oft í því en kíkið á þessar myndir:

Er það bara ég eða eru þeir pínu líkir á þessum myndum. Þetta eru auðvitað þeir Mika (öðru nafni Grace Kelly gaurinn) og Jim Morrison. Þeir eru nú allt annað en líkir venjulega en mér finnst þeir svona, já, frekar líkir þarna. Kannski bara krullurnar sem trufla svona. Er ég kannski alveg að missa mig í ruglinu?


 

 

 

 

 

Heyrði einhvern tíma viðtal við Adam Sandler þar sem hann sagði að þegar hann var gerður gamall í myndinni Click væri hann óneitanlega líkur Leonard Cohen. Ég hef nú ekki séð Click en mér finnst þeir nú samt frekar líkir. Reyndar erfitt að finna mynd af Adam Sandler alvarlegum og sömuleiðis erfitt að finna mynd af Leonard Cohen brosandi.

Benicio del Toro 

Brad Pitt

Svo hefur mér alltaf fundist hann Benicio del Toro vera eins og Brad Pitt eftir ca 10 ár, illa sofinn og eftir að fá kaffið sitt. Setti nöfnin undir til þess að forðast misskilning. Hahaha.

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn
Í ruglinu eða hvað?


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 17:14:11 / skyjaglopurinn

Ofurhetjur!

Ég hef lengi verið með æði fyrir ofurhetjum. Ekki veit ég af hverju. Er þetta litli strákurinn í mér að reyna að brjótast út. Ég er ósköp venjuleg 16 ára stelpa en alltaf þegar ég sé eitthvað með skemmtilegri ofurhetju framaná langar mig óstjórnlega í það, á meira að segja Spiderman púða, Superman plakat, Superman pennaveski og blýanta. Ég meina, er þetta eðlilegt. Kannski er þetta algengara en ég hélt, þessi ást til undrafólksins.

 

Ég hef lengi spáð í því hvert uppáhaldið mitt er. Hélt alltaf að það væri Spiderman með sinn stinna rass og mannlegu vandamál. Hélt svo á tímabili að það væri geimveran hann Superman sem ætti hug minn og hjarta en ó hvað mér skjátlaðist. Ég komst að því að mér finnst eitthvað að á báðum stöðum. Spiderman er eitthvað svo teprulegur, vantar allt karlmennið í hann, og svo er eitthvað skrítið við ofur amerískan karlmann sem er reyndar utan úr geimnum og hárið alltaf eins og hann sé ný kominn úr lagningu. Þá fann ég út hvert uppáhaldið er. Auðvitað er það Batman. Batman er ekki gæddur neinum töframætti, hann er bara gáfaður og sterkur. Svo finnst mér alltaf þessi drungalega hlið svolítið æsandi. Reyndar berst hann alltaf við einhverja úrkynjaða og stökkbreytta skúrka en það breytir því ekki að hann er alvöru! 

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn
Ofurhetju"áhugamaður"


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 11:11:57 / skyjaglopurinn

Sláturhúsið

Væri 'Sláturhúsið' ekki frábært nafn fyrir strippstað þar sem karlmenn sýna listir sínar? Ég bara spyr.

Ég hef verið að hugsa, sluppum við við að vera partur af tölvukynslóðinni? Ég man eftir því þegar ég var lítil og þá var sko farið út að leika sér. Þær voru sko ófáar göngurnar uppí Skúlahorn þar sem legið var í sólbaði og svo auðvitað ógleymanlegu ferðirnar upp að vatnstanki. Ég man eftir því þegar það var merkilegt að fara á netið og maður varð að bíða eftir því að tengjast í hálftíma. Svo var ekkert hægt að vera lengi á netinu þar sem ekki var hægt að ná í heimasímann og enginn var með farsíma á þessum tíma. Ég held ég hafi átt tvo tölvuleiki og fanst ég alveg rosalega heppin. Þessir leikir voru nú eitthvað takmarkaðir þannig að ég nennti nú ekkert að hanga í þeim. Svo er það kynslóð eins og bróðir minn. ADSL var nú ekki komið þegar hann var lítill en ég efa að hann muni eftir gömlu tímunum. Er hann þá partur á tölvukynslóðinni? Eða verður kynslóðin sem kemur á eftir okkur partur af henni? Eða fáum við kannski nóg og segjum bara stopp? Erum við kannski bara sér tegund af tölvukynslóð? Ég veit að ég er of oft í tölvunni en er það kannski af því að ég ólst ekki upp með því að hafa greiðan aðgang að tölvu?

Þetta er nú búið að vera ótrúlega skrítið að hugsa um en kannski finnst það engum öðrum:D

Jæja, nóg komið af þessu. Endilega kíkið á tenglana hérna á síðunni. Kannski ekkert fyrir ykkur en aldrei að vita hvaða duldu áhugamál leynast þar!

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 01:18:03 / skyjaglopurinn

Reykjavíkurferð og aftur í skólann

Próflokafríið að verða búið og maður mættur til hins heimilisins.

Fór suður um helgina í fyrsta skiptið í langan tíma. Missti mig aðeins í búðunum, haga mér sko ekki eins og fátækur námsmaður, ónei ónei. Huggaði mig samt við það að ég eyddi pening aðallega í rauðakrossinum, kolaportinu og útsölum á Laugaveginum. Ekkert alltof dýrt.

Fór í keilu. Verð að hrósa tónlistinni þar. Einhver geisladiskur í tækinnu með lögum sem ég gat sungið með, sem ég auðvitað gerði. Konan á næstu braut var farin að horfa óþægilega á mig, en hvað um það. Allt í einu heyrði ég svo kunnuglega tóna. Já, ég hafði rétt fyrir mér, þetta voru hinir ljúfu Kanadabúar í hljómsveitinni The Arcade Fire. Ég get ekki lýst ánægju minni þessa stundina. Ég snéri mér að móður minni og sagði með stórt bros á vörum mínum að þetta væri sko Arcade Fire sem væri í græjunum. Hún hoppaði nú ekkert af kæti. En ánægja mín varði ekki lengi. Allt í einu heyri er bara skipt um lag. Trúið þið þessu. Fyrsta skiptið sem ég heyri í Arcade Fire á fjölmennum stað og fólkið í afgreiðslunni skiptir bara um lag. Enn sú ósvífni. Óánægjan varði reyndar ekki heldur lengi af því að ég vann leikinn. Óje...

Tók nokkrar myndir í stórborginni. Hlóð þeim inn á veraldarvefinn svo endilega kíkið á það. Smellið bara á linkinn hér fyrir neðan. Svolítið margar myndir en þetta er nú STÓRborg!

Reykjavík - með mínum augum  

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 22:59:43 / skyjaglopurinn

Light Grenades

Hugsanir Margrét: Af hverju segjum við svona oft bæ tvisvar í röð? bæbæ. Humm...

Missti mig svolítið í útsölunum hérna fyrir norðan og auðvitað laumuðust með vörur sem voru bara ekkert á útsölu.

Keypti mér:

Englar Alheimsins
7 television commercials RADIOHEAD
NIRVANA Live! Tonight! Sold out!!
Incubus - Light Grenades (Nýi Incubus diskurinn, jeyj. Ekki á útsölu.)
Krúttleg flík

Þrjú próf búin: Jarðfræði, enska og stærðfræði. Ekkert próf í dag og heldur ekkert á morgun. Danska á fimmtudaginn, íþróttafræði á föstudaginn og síðan síðasta prófið, íslenska á mánudaginn. Þá er bara komið viku frí. Jibbí.
Bæbæ...

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:41:57 / skyjaglopurinn

Purr

Fyrsta  prófið var í dag. Jarðfræði hefur nú aldrei verið mín sterkasta hlið en ég held þetta reddist nú. Enska á morgun. Það er nú ekkert til þess að æsa sig yfir.

Ég prófaði svolítið nýtt í gær, ég fór á snjóbretti. Vá hvað það er ótrúlega gaman. Mæli með þessu. Samt bannað að gera grín af því hversu léleg ég er.

Sonic Youth:

"i said it before
and i'll say it again
i'm so happy
we're just friends
"

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 21:21:52 / skyjaglopurinn

Síðasti skóladagurinn! Jeyj!

Í dag var síðasti skóladagur þessarar annar. Úje. En nú fer alvaran að taka við, PRÓFIN! En ætli maður taki þessu ekki bara af einstakri ró og skynsemi. Úff, maður er orðinn svo fullorðinn.

Hljómsveit bloggfærslunnar verður eiginlega að vera Incubus af því að ég er búin að kaupa mér miða á tónleikana í mars. Á meira að segja tvö stykki, einn fyrir mig og einn fyrir litla bró. Vá hvað það verður gaman. Ég þarf nú ekki að spyrja hverjir fara þar sem ég veit ég er að fara í roadtrip með Ástu og Jóhanni. Þetta verður best!

Fallegir miðar ekki satt?
Svo er Brandon Boyd alltaf flottur (roðna niðrí rassgat)

"So Pardon me while I burst into flames.
I've had enough of the world, and its people's mindless games
So Pardon me while I burn, and rise above the flame
Pardon me, pardon me. I'll never be the same."

Nú verður maður bara að byrja að hita upp fyrir tónleikana. Get ekki beðið.

Kveðja
Margrét Arna
Skýjaglópurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill